Fjarmælingar – staðsetning og skynjaragögn frá búnaði á ferð
Stór hluti búnaðarins sem þarf að fylgjast með stendur ekki kyrr í verksmiðjusal. Hann er á pramma, kerru, afskekktri dælustöð eða skipi. Þá þarf tvennt: að vita hvar hann er og hvernig hann hefur það. Um það snúast fjarmælingar – að safna gögnum frá búnaði úr fjarlægð.
Einföld rakning: Copenhagen Trackers Cobblestone
Stundum er staðsetningin allt sem þarf. Cobblestone frá Copenhagen Trackers er lítill GPS-rekjari með innbyggðu SIM-korti sem sendir staðsetningu sína um farsímanetið. Samkvæmt framleiðanda getur rafhlaðan enst í um fjögur ár með einni staðsetningu á sólarhring, og enn lengur með sjaldnari rakningu. Hann er vatns- og rykþéttur (IP67) og án mánaðargjalds.
Það gerir hann hentugan fyrir búnað sem þarf að vera hægt að finna aftur – gáma, kerrur, vélar eða verðmætan búnað sem fluttur er á milli staða – án þess að leggja þurfi rafmagn.
Meira en staðsetning: Teltonika RUT með GPS
Þegar búnaðurinn hefur líka stýringu og skynjara þarf meira. Teltonika framleiðir iðnaðarbeina sem tengja búnað við farsímanetið. RUTX50 notar 5G og er með innbyggða gervihnattastaðsetningu sem styður GPS, GLONASS, Galileo og BeiDou.
Beinirinn getur átt samskipti með Modbus við PLC og skynjara á staðnum og sent gögnin áfram meðal annars með MQTT og HTTPS. Hann getur líka verið brú milli Modbus og MQTT. RMS-vettvangur Teltonika gerir kleift að fylgjast með og uppfæra marga beina úr fjarlægð.
Þannig fæst bæði staðsetning og mælingar úr sama tækinu – þrýstingur, staða, hitastig, rekstrarstaða eða viðvaranir – um hraða og stöðuga farsímatengingu.
Frá hrágögnum til yfirsýnar í Ignition
Gögn hafa fyrst gildi þegar einhver sér þau. Ignition byggir á opnum stöðlum eins og MQTT og SQL og hentar vel til að safna gögnum frá búnaði sem dreifist yfir stórt svæði. Þar má sýna staðsetningu og skynjaragögn saman á skjámyndum sem virka í vafra og farsíma, geyma söguleg gögn og nota þau til viðvarana þegar eitthvað víkur frá.
Það gerir kleift að svara spurningum eins og: Hvar er búnaðurinn núna? Hvaða einingar hafa ekki skilað gögnum í smá tíma? Hvernig hefur reksturinn þróast síðustu vikuna?
Hvernig Elio getur hjálpað
Elio setur saman alla keðjuna: val á rekjurum, beinum og skynjurum, uppsetningu öruggra samskipta, og skjámyndir, viðvaranir og söguleg gögn í Ignition. Við erum Gold Certified Ignition-samþættingaraðili og byggjum líka netið og upplýsingatæknina í kring.
Ertu með búnað á vettvangi sem þú vilt betri yfirsýn yfir? Lesa meira um SCADA, upplýsingatækni og net eða hafðu samband.
